[MP3] Hanky and Panky

hanky

Hrikalega er þreytandi að fylgjast með fjölmiðlum þessa dagana. Í gær áttu allir starfsmenn Landsbankans að halda vinnunni, í dag missa 500 starfsmenn Landsbankans vinnuna. Í fyrradag var varað við vöruskorti, í gær tilkynnt að enginn vöruskortur væri yfirvofandi. Í dag er svo talað um yfirvofandi vöruskort. Bílalánið mitt, sem byrjaði með 25.000 kr afborgun fyrir rúmu ári, er nú komið í 53.000 króna afborgun. Ég veit ekki hvort ég á að vera glaður eða hryggur yfir að eiga engan pening í banka. Miðað við hvernig gengur að standa við loforðin, þá er eins líklegt að allar innistæður landsmanna verði gufaðar upp á morgun.

Það er því ágætt að fá bara smá hressandi Twee frá Svíþjóð. Hanky and Panky eru þrír unglingar sem líklegast hafa löngu gefist upp á poppinu því síðan þeirra hefur ekki verið uppfærð í tvö ár. Hinsvegar eiga þau nokkra skemmtilega smelli, illa spilaða og í raun algerlega fábjánalega, en merkilega grípandi engu að síður. "Hurray" er til dæmis sérdeilis grípandi lag í barnalegum einfaldleika sínum.

[MP3] Hanky and Panky - Hurray
[MP3] Hanky and Panky - Dance and Sing
[MP3] Hanky and Panky - Boys and Girls
[MP3] Hanky and Panky - Ha Ha Ha Ha
[MP3] Hanky and Panky - Love you

[Meiri lög með Hanky and Panky]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband