[MP3] 17. júní

17_juni

[MP3] Dýrðin - 17. júní 

Hann stendur í þvögunni
á miðjum Austurvelli
í dag er afmæli og hann á sér eina ósk:
að finna sólskin kyssa kinn
og fá blöðru eins og hin
dreymir um sælgæti
og hoppukastalann

Hann vill ganga um með oss
og fá líka...

Candyfloss
á 17 júní
Candyfloss
á 17 júní
Hann langar í candyfloss
á 17 júní
Og kannsk´einn lítinn koss
á 17 júní

Krakkagrislingar
vita fæstir hver hann er
en hann heitir Jón og á afmæli í dag
Hann getur sig hvergi hreyft
og enga pulsu keypt
ekki haldið ræðu eða sungið lítið lag

Hann vill ganga um með oss
og fá líka...

Candyfloss
á 17 júní
Candyfloss
á 17 júní
Hann langar í candyfloss
á 17 júní
Og kannsk´einn lítinn koss
á 17 júní

Blöðrurnar svífa allt í kringum hann
en grípa þær hann ekki kann
Sjálfstæðið frá dönskum kóng hann vann
Stendur þarna daginn út og inn
Hefur staðið allan mánuðinn
Alveg síðan við settum hann á Austurvöllinn

[Myspace]


mbl.is Forsætisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

[MP3] My Bloody Valentine upphitunargigg 13. júní

My Bloody Valentine héldu fyrstu "comeback" tónleikana sína í Institute for Contemporary Arts í London á föstudaginn. Tónleikarnir voru einskonar upphitun en eiginleg endurkoma sveitarinnar hefst svo í The Roundhouse í London þann tuttugasta þessa mánaðar.

Hér gefur á að líta myndband sem tekið var á föstudaginn, en hljóðið er arfaslæmt, enda hávaðinn slíkur að venjulegar vídeókamerur grillast bara við álagið:

 

Hér má svo sjá stutt og skondið myndbrot sem aftur gefur manni smá hugmynd um lætin:

http://www.youtube.com/watch?v=4sRfsAJ1xU4

Og hér er hægt að sækja hljóðupptöku af öllu gigginu, líklgast tekið upp í gegnum mixer, en þar er hljóðið jafn flatt og það er bjagað í myndböndunum:

http://burningworld.blogspot.com/2008/06/my-bloody-valentine-london-ica-13th.html

Hér er vídeóupptaka af "When you sleep" tekið á tónleikunum á föstudaginn:

http://youtube.com/watch?v=YV7GAUxkFyo

Og hérna eru tvö lög af plötunni Loveless:

[MP3] My Bloody Valentine - Only Shallow
[MP3] My Bloody Valentine - Loomer


[MP3] Airwaves #2 - Familjen

familjen2

Algerlega valið blindandi af handahófi kemur hérna næsta band sem væntanlegt er á Iceland Airwaves 2008. Familjen er semsagt einhverskonar techno electró dans átfitt frá Stokkhólmi.

[MP3] Familjen - Hög Luft
[MP3] Familjen - Hög Luft (The Field Mix)
[MP3] Familjen - Feber (Krazy Fiesta Remix)
[MP3] Familjen - Huvuded I Sanden (feat. Adam Tensta)

Vídeó:

Det Snurrar I Min Skalle:

Huvudet I Sanden:

[Myspace]


[MP3] Airwaves #1 - Dirty Projectors

dirty

Þá er að tékka á þessum Airwaves böndum. Byrjum á Dirty Projectors sem eru frá Brooklyn, nánar tiltekið Bedford-Stuyvesant. Vonandi virka allir þessir linkar, ég gróf þetta upp bara hér og þar. Hljómar þetta spennandi? Hvað finnst ykkur?

[MP3] Dirty Projectors - What I See
[MP3] Dirty Projectors - Rise Above
[MP3] Dirty Projectors - Depression
[MP3] Dirty Projectors - No More
[MP3] Dirty Projectors - Hyperballad (Bjarkar cover)
[MP3] Dirty Projectors - Gimme Gimme Gimme
[MP3] Dirty Projectors - Jolly Jolly Jolly Ego

[Myspace]


[MP3] Morðingjarnir

morðingjarnir

Þá hefur verið gerður heyrinkunnur listi yfir bönd sem staðfest eru á næstu Iceland Airwaves hátíð. Að vanda eru sömu íslesnku fastagestirnir og undanfarin ár, nema eitthvað sem heitir Glutus Maximus sem ég veit ekkert hvað er. Erlendu böndin eru svo allt annað mál. Ég verð bara að játa að ég þekki ekki eitt einasta nafn. CSS? Hvað er nú það? Cascading Style Sheets? Þessi nöfn erlend hafa verið kynnt til sögunnar:

Young Guns, Junior Boys, CSS, Dirty Projectors, Final Fantasy, Yelle, Planningtorock, White Lies, Therese Aune, Stars Like Fleas, Miracle Fortress, Florence and the Machine, Robots in Disguise, PNAU, Familjen, Handsom Furs, Simian Mobile Disco, Crystal Castles, Jerry Bouthier og These New Puritans.

Eflaust spilar ekkert af þessum böndum ofursætt twee eða pedala shoegaze. Robots in disguise hljómar eins og eitthvað skemmtilega nördalegt, og mér er sagt að Crystal Castles, Planningtorock og Miracle Fortress sé alveg þrælgott á að hlýða. Og það er auðvitað alveg stórkostlegt að fá hingað bönd sem er ekki búið að spila út í eitt í útvarpinu, maður heyrir þá eitthvað nýtt ferskt væntanlega. Glöggir lesendur mega gjarnan benda á hljóðdæmi eða uppfræða mig um eitthvað af þessum böndum ef þeir nenna.

Morðingarnir hafa hinsvegar ekki verið staðfestir skv. útgefnum lista, en það er vel við hæfi að fá nokkur tóndæmi með þeim. Það er örstutt síðan ég sá þá fyrst á tónleikum og ég bara gapti af undrun og gleði. Meira! Meira! Hérna er fremst í flokki slagari sem vakið hefur harðvítugar deilur og skítkast manna í millum, og á vel við nú þegar útlit er fyrir stærstu og glæsilegustu Airwaves hátíðina frá upphafi.

[MP3] Morðingjarnir - Airwaves
[MP3] Morðingjarnir - Ekki í dag
[MP3] Morðingjarnir - Eiturlyfjafíklar
[MP3] Morðingjarnir - Drep ykkur öll
[MP3] Morðingjarnir - Til hvers?

[Morðingjarnir á Rokk.is]
[Myspace]

Hérna eru þeir félagar svo í góðum gír fyrir nokkrum árum í hljómsveitinni Dáðadrengir:

 


[MP3] Singapore Sling

slingÞótt ég hafi gaman af barnalegri popptónlist þá er ekki bara gleði og hamingja á þessu mp3 bloggi. Ég er nefninlega líka veikur fyrir ærandi hávaða og yfirþyrmandi brotsjó af drynjandi gítörum á kafi í effektum. Singapore Sling er líklegast, eða öllu heldur án efa, besta slíka hljómsveitin hér á landi, og þau gefa á næstunni út fjögurra laga smáskífu sem fylgja mun næsta tölublaði Grapevine.

Skífan sú mun innihalda tvö ný lög, og tvær endurhljóðblandanir, aðra unna af hljómsveitinni Bacon sem inniheldur fyrrum meðlimi Stjörnukisa, og hin af Evil Madness sem skartar m.a. Jóhanni Jóhannssyni sem gerir núna gjarnan íðilfagra kvikmynda- og leikhústónlist en á sér þeldökka fortíð úr hávaðrokksveitinni Daisy Hill Puppy Farm. 

Þess fyrir utan er Singapore Sling að leggja lokahönd á næstu breiðskífu sem væntanlega lítur dagsins ljós í september.

Hljómsveitin var stofnuð árið 2000 af þeim Henrik og Einari, og fyrsta plata þeirra, The Curse of Singapore Sling, kom út árið 2002. Henrik var áður stofnmeðlimur Bang Gang ásamt Barða nokkrum Jóhannssyni. Bjössi trommari gerði áður garðinn frægan í PPPönk þar sem hann lék á bassa, en Ester sem plokkar bassann í Sling var í Kolrössu Krókríðandi.

Hlýðum á nokkur tóndæmi þar til nýja efnið kemur út. Af þessum lögum er ég lang hrifnastur af Guiding Light, og mæli með að stilla hátt!

[MP3] Singapore Sling - Guiding Light
[MP3] Singapore Sling - Overdriver
[MP3] Singapore Sling - Listen
[MP3] Singapore Sling - Life is killing my Rock 'n' Roll


Je Suis Animal - The Mystery of Marie Roget

Norsk/Enska sveitin Je Suis Animal sækir áhrif víða að, meðal annars til Edgar Allan Poe. Skemmtilegt lag, flott myndband. Vúhú!

 


[MP3] Spaghetti Vabune!

spaghetti

Spaghetti Vabune! er stórkostleg japönsk hljómsveit sem gerir út á gítarpopp í hæsta gæðaflokki, enda heitir nýjasta platan þeirra Guitar Pop Grand Prix, en hún kom út árið 2006 hjá Bluebadge label í Japan. Hana hef ég ekki eignast en ég náði mér í plötuna Summer Vacation, Sunset Vehicle frá árinu 2003 og hún er svo að segja skotheld út í gegn.

Ég taldi við fyrstu hlustun að allt væri sungið á japönsku, en fór svo að rýna í textablaðið. Meiri hluti laganna er þá á ensku, en þau syngja með svo svakalega þykkum hreim að það skilst bara stöku orð, og það bara þegar maður les textann með. Ensku textarnir eru svo alveg arfaslakur leirburður og leiða má að því getur að þau skilji ekki orð í ensku, mér dettur helst í hug þau hafi þýtt japanska textann sinn með þýðingartóli eins og babelfish.altavista.com, og svo sungið það sem kom út án þess að vita hvernig framburðurinn ætti að vera.

Það breytir því hinsvegar ekki að þetta er alveg sérdeilis grípandi popp.

Afar erfitt reynist að finna eitthvað gáfulegt um sveitina á netinu, það er allt á japönsku. Vefsíðan þeirra er skemmtileg að því leitinu að "menu" hlutinn er á ensku s.s. "News", "About SV" og "Link", en svo er allt "contentið" á japönsku, og því skiptir engu máli þótt maður geti vafrað á réttan hluta vefsins. En nóg um það, hlustið á lagið "Chokolate Song" sem nota bene er sungið á Japönsku að mestu leiti, utan einstaka orð. Fyrsta setningin í textanum er til að mynda "It's sunnyday" og stuttu síðar má með lagni greina "shining star".

[MP3] Spaghetti Vabune - Chocolate Song

Myndband við lagið "Prime Plumstar" sem er líklegast af 2006 plötunni. Ég veit ekki hvort það er á ensku eða japönsku:

Bónusvídeó: "Chocolate Song":

 

[Myspace]


[MP3] Je Suis Animal

jesuisanimal

Íslenskir tónleikahaldarar keppast nú við að rukka morðfjár inn á risavaxna tónleika með gömlum hrukkudýrum sem voru upp á sitt besta fyrir tugum ára síðan. Lítið fer hinsvegar fyrir því að nýjum og áhugaverðum böndum skoli hingað á land. Í haust gæti orðið breyting á en nokkrar jaðarsveitir hafa viðrað áhuga sinn á að spila hér, s.s. Secret Shine, og einnig norska sveitin með franska nafnið, Je Suis Animal, sem reyndar er skipuð bæði norðmönnum og bretum.

Hugmyndin að bandinu ku hafa sprottið í breskum listaháskóla, en meðlimir settust svo að í Osló og hófu útgerð þaðan árið 2004. Árið eftir kom út smáskífan Fortune Map, og fyrsta stóra plata þeirra leit svo dagsins ljós í febrúar á þessu ári, gefin út af Perfect Pop Records í Noregi. Áhugi vaknaði á sveitinni hvarvetna og í gær kom platan einnig út í Ástralíu. Textarnir koma víða við og fjalla m.a. um morðgátur, kynlíf, galdra, njósnir og hinn víðfræga norska landkönnuð Roald Amundsen að safna snjókornum.

Þetta er einskonar pshychadeliskt twee popp, minnir mig á köflum á Boo Radleys og Stereolab, en þau nefna sem áhrifavalda allar helstu ofurstjörnur C-86 bylgjunnar bresku, s.s. Shop Assistants, The Pastels og Talulah Gosh, og síðast en ekki síst Sykurmolana.

[MP3] Je Suis Animal - Roald Amundsen
[MP3] Je Suis Animal - Hotel Electrique
[MP3] Je Suis Animal - Beginning of Time


[MP3] Los Fresones Rebeldes

losfresones

Ég er bara í einhverju rugli hérna, sit nú og hlusta á spænska tónlist daginn út og inn, og fæ ekki nóg. Fann vef þar sem hægt er að sækja sér einhver hundruð platna í heilu lagi gegnum rapidshare, og borgaði fyrir tveggja daga ótakmarkað niðurhal. Fékk ábendingar að utan um hvað væri þessi virði að sækja, og sit núna uppi með 44 stk af spænskum indiepopp plötum.

Los Fresones Rebeldes er gott dæmi um pönkskotna twee-popp sveit, spilar augljóslega bara af því þeim finnst það gaman, og skítt með það að spila vel. Gaman líka að því hvað spánverjarnir syngja rosalega hratt, það er engin leið að fylgjast með þótt maður hafi textann fyrir framan sig.

Hérna er eitt stórskemmtilegt lag af plötunni Exitos 99 frá árinu 2000. Sveitin lagði upp laupana eftir útgáfu hennar, en nokkur þeirra birtust svo aftur í músíksenunni árið eftir undir heitinu Cola Jetset. Gítarleikur er skemmtilega veimiltítulegur, og bakraddirnar eru einhversstaðar lengst út í móa að elta kindur og droppa sýru.

[MP3] Los Fresones Rebeldes - Tú No Te Vas De Aquí (Así Como Así)

Hér er svo vídeó við lagið "Al Amanecer". Fílíngurinn í þessu minnir mig einhvernveginn á Morðingjana, þetta er bara ekki alveg jafn skeggjað.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband