25.10.2008 | 16:54
Myndir frá, og umfjallanir um, Airwaves
Tónlist | Breytt 29.10.2008 kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.10.2008 | 23:49
[Vídeó] Myndbönd sem taka sjálf sig bókstaflega - Head over Heels með Tears for Fears
Hvað ef að fólk myndi nú bara syngja það sem er að gerast í myndbandinu? Jú þá væri útkoman einhvernveginn svona. Merkilegt hvað þetta hljómar líkt og Roland Orzabal. Stórskemmtilegt alveg. |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.10.2008 | 20:08
[MP3] Milky Whimpshake lag dagsins - Dialling Tone
Grípandi gítarpopp sem varla nær tveimur mínútum. Þannig á það að vera. Milky Wimpshake minna dáldið á Ramones, skíteinfaldar grípandi hraðar laglínur. Það skal engan undra að skv. sögunni þá var fyrsti trommari sveitarinnar stúlka sem hafði látið breyta nafni sínu í Joey Ramone. Dialling Tone kom upprunalega úr á samnefndri smáskífu en á B hliðinni voru lög eftir Daniel Johnston og Jonathan Richman. Árið 2002 kom það svo út á frábærri breiðskífu sveitarinnar sem heitri Lovers not Fighters. Í þessum texta, eins og flestum textum bandsins, eru nokkur gullkorn enskrar ljóðagerðar, s.s. "your boyfriend seems so dull, he was probably born in Hull". [MP3] Milky Wimpshake - Dialling Tone I can't help it, I miss you I'm not married and you're not divorced Yeah I know I'm your bit on the side I don't wanna make a habit of this Yeah I know I'm your bit on the side |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 17:58
[MP3] Milky Wimpshake lag dagsins - I wanna be seen in public with you
Eitt allra besta band allra tíma... og nær enginn þekkir það. Hérna er fyrsta snilldin af nokkrum, lagið "I wanna be seen in public with you": I wanna wanna be alone with you You can tell me your philosophy I wanna spend the night with you I like to watch the way you talk I wanna be seen in public with you I wanna beat you fair and square in chess Tell me honey if it can work I wanna be seen in public with you... [MP3] Milky Wimpshake - I wanna be seen in public with you Hækka svo í botn! |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2008 | 19:42
[MP3] Santa Dog
Ég er ekki búinn að sjá neitt á Airwaves ennþá, skömm að þessu. Gærkvöldið fór í æfingu hjá bandinu, dagurinn í dag hefur svo farið í að vera lasinn. Aldurinn er farinn að segja til sín. Um daginn dró ég fram dýnu og skellti á stofugólfið, hófst svo handa við að gera magaæfingar í fyrsta sinn síðan í grunnskóla. Það kostaði heilan dag í rúminu með þursabit. Nú er konan með ælupest og með minni heppni verð ég frávita af ógleði á Organ annað kvöld. Það gæti reyndar verið svoldið svalt sjóv, að æla á sviðið. Ekki missa af því! Reyndar gat ég ekki setið á mér í dag og dröslaði 14 mánaða dóttur minni á tónleika með Hellvar í höfuðstöðvum Kimi Records á smiðjustíg. Það var vel þess virði, Hellvar er stórlega vanmetið band, og stúlkan dillaði sér við hvert einasta lag, enda mikil músík í dömunni. Hljómsveit dagsins kemur hinsvegar engu þessu við á nokkurn hátt, mig langaði bara til að barma mér aðeins. Santa Dog er frá Bristol í Bretlandi og ég botna ekki í hversvegna þetta band hefur ekki öðlast heimsfrægð. Þeim er gjarnan líkt við Throwing Muses en ég tel mig greina dáldið af spilagleði The Cardigans einstaka sinnum. Sveitin gaf út fyrstu breiðskífu sína, Kittyhawk, í fyrra og hana tel ég hiklaust með bestu plötum seinasta árs. Forsprakki sveitarinnar er óumdeilanlega hin reffilega Rowena Dugdale. Orðið "reffileg" hefur líklegast verið búið til um hana, svo mikið gustar af henni á sviði, en ég var svo heppinn að detta inn á tónleika með sveitinni í London í desember síðastliðnum. Sveitin stefnir á að taka upp aðra plötu núna í vetur, og á næstunni kemur út smáskífan "Spark it up". Rowena hefur þetta að segja um tvö lög sem ég pósta hér: [MP3] Santa Dog - Rosa
[MP3] Santa Dog - Chemical
Ég veit að bandið vill gjarnan spila hérlendis, og það er óskandi að það gerist fyrr en síðar. En hérrna eru tvö önnur lög með bandinu: [MP3] Santa Dog - Pop Coloured [Myspace] Rowena er þar fyrir utan sérdeilis hæfileikaríkur grafískur hönnuður, og útskrifaðist með sæmd frá Edinburgh College of Art. Skoða má verk hennar á því sviði hérna. |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2008 | 13:00
[MP3] Best of...
Iceland Airwaves er svona eins of fyrsti snjórinn, læðist að manni og skellur á öllum að óvörum þótt allir viti hann sé á leiðinni. Og ég stend hérna á sumardekkjunum og veit ekkert hvað ég ætla að sjá, eða hvernig maður ætti að plögga sínu eigin bandi sem best. Á maður ekki að sitja bara og þamba kaffi á einhverjum pöbbnum og vonast maður rekist á virtan blaðamann frá útlöndum? Híma fyrir utan Media Centerið í Skífunni? Á maður að gefa alla diskana sem eftir eru? Seinustu ár hafa farið 60 diskar í einhverja blaðamenn sem hvort sem er skrifa bara um Lay Low og Gus Gus. Speed dating við bransalið? Ráðstefna á Hótel Sögu? Já, en að er pabbahelgi!! Besta tækifærið til að plögga tónlistinni er akkúrat þessa helgi, og maður hefur bara áhyggjur af börnum, vinnu og afborgunum af lánum. Og stressast yfir því að á tónleikunum eigi maður eftir að spila eitthvað vitlaust eða detta um einhverja snúru á sviðinu. Ef þið hafið áhuga á að sjá það gerast á kíkið þið á Organ á föstudaginn klukkan 20.15. Svona til að drepa tímann þá ætlaði ég núna að taka saman nokkur uppáhaldslögin mín sem ég hef póstað hér í gegnum tíðina. Best of? Ekkert endilega, frekar það sem ég er sjálfur í stuði til að hlusta á í dag. Guaranteed to make you smart, or no money back! Skál svo fyrir bjartri framtíð tónlistarblogga og stórkostlegri Airwaves hátíð! The Legends - Seconds away |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2008 | 14:00
Purrkur Pillnikk tribute ... aftur
Fyrir utan allt Airwaves dæmið næstu dagana, þá geta tónlistarunnendur glaðst yfir því að Purrkur Pillnikk Tribute verður endurtekið næstkomandi föstudag á Grandrokk. Ekki hefur tribute bandið fengið neitt nafn sem ég fæ séð, en seinast þegar ég póstaði um þetta fór ég rangt með að hljómsveitin Mjööög væri að spila. Svo var ekki, og svo er líklegast ekki núna heldur. Hinsvegar má gera ráð fyrir að þeir félagar Bjössi, Pétur, Flosi og Helgi grípi í hljóðfæri þarna og hrópi örvæntingarfullir um eyrðarleysi stórborgar. Ekki þekki ég nánari deili á þeim félögum að svo stöddu. Nú, ekki bara verður þetta á Grandrokk á föstudaginn, heldur líka í Hljómalind á laugardaginn... Semsagt: Grandrokk föstudaginn 17 okt. kl 23.00. Morðingjarnir hita upp. Kostar ekki rassgat. Hljómalind laugardaginn 18 okt kl 23.00. Kostar ekki rass. |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2008 | 12:57
[MP3] Airwaves # 26 - Half Tiger
Half Tiger er "fjögurra manna alþjóðleg kássa", eins og meðlimur sveitarinnar, Siggi Sadjei, kemst að orði í stuttu viðtali við mp3.blog.is. Siggi og Gísli eru íslendingar, Simon Davies er breskur og Monica er frá Noregi.... "en við lítum samt á okkur sem "London" band því þar búum við öll, vinnum og gerum galdra!"
Öll hafa meðlimir sveitarinnar komið víða við í tónlistinni áður, Gísli gaf til að mynda út sólóplötuna How about that? hjá EMI. Gísli og Simon kynntust þegar sá síðarnefndi spilaði í live bandi Gísla. Siggi Sadjei er svo Íslendingum að góðu kunnur úr Skyttunum og Fræ.
Hálf-íslenska hljómsveitin Half Tiger treður upp á Organ á föstudaginn klukkan 23.15. Ég held það sé alveg góð ástæða til að fjölmenna þangað. Hérna er smá tóndæmi, bútur úr laginu "Natalie now". [MP3] Half Tiger - Natalie now (clip) [Myspace] |
Tónlist | Breytt 14.10.2008 kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.10.2008 | 21:23
[MP3] Hanky and Panky
Hrikalega er þreytandi að fylgjast með fjölmiðlum þessa dagana. Í gær áttu allir starfsmenn Landsbankans að halda vinnunni, í dag missa 500 starfsmenn Landsbankans vinnuna. Í fyrradag var varað við vöruskorti, í gær tilkynnt að enginn vöruskortur væri yfirvofandi. Í dag er svo talað um yfirvofandi vöruskort. Bílalánið mitt, sem byrjaði með 25.000 kr afborgun fyrir rúmu ári, er nú komið í 53.000 króna afborgun. Ég veit ekki hvort ég á að vera glaður eða hryggur yfir að eiga engan pening í banka. Miðað við hvernig gengur að standa við loforðin, þá er eins líklegt að allar innistæður landsmanna verði gufaðar upp á morgun. Það er því ágætt að fá bara smá hressandi Twee frá Svíþjóð. Hanky and Panky eru þrír unglingar sem líklegast hafa löngu gefist upp á poppinu því síðan þeirra hefur ekki verið uppfærð í tvö ár. Hinsvegar eiga þau nokkra skemmtilega smelli, illa spilaða og í raun algerlega fábjánalega, en merkilega grípandi engu að síður. "Hurray" er til dæmis sérdeilis grípandi lag í barnalegum einfaldleika sínum. [MP3] Hanky and Panky - Hurray |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2008 | 12:45
[MP3] Airwaves #25 - Kap10Kurt
Já, allir út á dansgólfið segi ég nú bara. Kap10Kurt er að koma til landsins! Þessi eiturhressi og loðni svisslendingur gerir tölvuleikjadiskósveitina sína út frá New York. Ubersveitt diskó út í gegn. Eða house... eða techno.. ég þekki ekki rétt vel muninn, en þetta er aðeins skemmtilegra en margt annað í þessum geiranum. Læt bara upplýsingar af Iceland Airwaves síðunni tala sínu máli:
Artist to watch indeed. Eða kannski artist to watch out for. [MP3] Kap10Kurt - Dangerseekers Myndband við "Dangerseekers": [Myspace] |
Tónlist | Breytt s.d. kl. 12:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)