Ódýrasta bensínið

Ég vildi nú gjarnan benda á vefinn gsmbensin.is nú þegar bensínverð er enn einu sinni milli tannanna á fólki. Miðað við þessa frétt og að því gefnu að vefsíðan gsmbensin.is sé rétt (uppfærð fyrir 10 mínútum þegar þetta er ritað) þá má spara sér 8 krónur á líterinn með því að sniðganga N1!

http://gsmbensin.is

95 okt
Félag-Stöð-Verð
OrkanHafnarfjörður149.10
OrkanDalvegur Kópavogi149.10
ÓBBæjarlind149.20
ÓBFjarðarkaup149.20
AtlantsolíaHafnarfjarðarhöfn149.20
AtlantsolíaBúðarkór149.90
AtlantsolíaKaplakriki149.90
OrkanSkemmuvegur151.10
OrkanGrafarvogur151.10
ÓBBarðastaðir151.20

 

 


mbl.is Eldsneyti hækkar hjá N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óttarr Makuch

Já, þú segir nokkuð, ekki vissi ég af þessari síðu.  Það væri kannski ráð að fylgjast með henni í framtíðinni....

Takk fyrir þetta innlegg.

Óttarr Makuch, 11.11.2008 kl. 22:43

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Takk fyrir að benda á þessa síðu. Þar er fróðlegt að bera saman landshluta. Ef við tökum dæmi af Orkunni, þá er sama verð í Reykjavík og á Akureyri en tveimur krónum dýrara á Akranesi. Ekki veit maður hvað ræður en sér að bensín er ódýrara á Egilsstöðum hjá Shell heldur en á fjörðunum. Hæsta verð hjá Shell er svo í Hallormsstað og Freysnesi. Hins vegar er hagstæðast að taka bensín í Hafnarfirði og Kópavogi.

Haraldur Bjarnason, 11.11.2008 kl. 22:54

3 Smámynd: Magnús Axelsson

Það er áhugavert líka að Atlantsolía er 4 krónum dýrari í RVK en í Hafnarfirði, og sömuleiðis er 4 króna munur á ÓB stöðvum t.d. við Fjarðarkaup vs. Snorrabraut. Manni hefði dottið í hug að það væri sama verð á þessum stöðvum, það er nú ekki svo ýkja langt á milli þeirra.

Eins líka að N1 er ekkert með þarna, ég held þeir hafi neitað þáttöku í þessu, enda koma þeir ekki vel út úr samanburðinum við hina.

Magnús Axelsson, 11.11.2008 kl. 23:14

4 Smámynd: Kjósandi

Þá má vekja athygli á því að ef menn fá sér kort þá má fá afslátt upp á 2 til 4 krónur í viðbót.

Heyrði að ef þú ert með bæði kort og lykil hjá ÓB þá færðu 4 kr. afslátt

Kjósandi, 11.11.2008 kl. 23:56

5 identicon

Varðandi bensínverð er ég nú ekki viss um að Íslendingar ættu neitt mikið að vera að kvarta. Ég bý í Álaborg í Danmörku en er núna stödd í Þrándheimi í Noregi. Hérna beint á móti mér kostar bensínið í sjálfsafgreiðslu 11.2 NOK sem gerir 224,29 ISK miðað við genigð í dag. Í Álaborg get ég fengið ódýrast á 8.9 DKK (ef ég er mjög heppin, annars yfir 9 DKK) sem gerir 210,15 ISK. Svo ég skil mjög vel að olíufyrirtækin verði að hækka verð vegna gengisins. Fyrir námsmenn erlendis sem fá sínar tekjur í íslenskum krónum, þá verð ég að segja að Íslendingar ættu bara að vera glaðir með að þurfa ekki að borga nema í kringum 150 ISK fyrir lítrann.

Námsmaður í DK (IP-tala skráð) 12.11.2008 kl. 06:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband