[MP3] The Specific Heats

specific

Fólk er alveg sultuslakt á Besties getrauninni, giskar ekki einu sinni á Gullfoss, þótt með fylgi mynd af bandinu við það að stökkva í fossinn. Enda ekki margir sem þekkja The Besties og vita ekki til hvers er að vinna. Það má hinsvegar upplýsa að staðurinn er á Snæfellsnesi og honum fylgir sú hjátrú að óskir manns rætist ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt. Vinningurinn er ekki af verri endanum enda eru 7" smáskífur nú hipp og kúl, og þessi er þar að auki grá á litinn.

Núna er hinsvegar ljómandi fallegur sunnudagur, með tilheyrandi skýjafari, kulda og roki, í það minnsta hér á höfuðborgarsvæðinu. Þá er við hæfi að skella sér í sunnudagsbíltúr og fá sér ís, og þetta vita krakkarnir í The Specific Heats frá Boston. Hljómsveitin er hugarfóstur hins smávaxna Mat Pat sem hefur einnig verið liðtækur meðlimur sveita eins og Shumai og My Teenage Stride. Í fyrra kom út platan Aboard a Spacechip of the Imagination sem er stútfull af nördapoppi með surf áhrifum....

specific2

Hlýðum á lag um ís, og fáum svo fallegt lag þar sem Mat tekst að tvinna saman misheppnuðu ástarævintýri og Carl Sagan. "It was science that brought us together and nature that pulled us apart".

Ég er alveg sérstaklega veikur fyrir lögum þar sem "ba ba ba" er notað sem uppfylling í textagerð.  "Ice Cream Shop" er fallegt dæmi um lag þar sem ba ba ba er notað í góðu hófi. Á næstunni ætla ég svo að draga fram í dagsljósið lög þar sem þetta er notað meira en góðu hófi gegnir.

[MP3] The Specific Heats - Ice Cream Shop
[MP3] The Specific Heats - Carl Sagan

[The Specific Heats á Myspace]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband