[MP3] The Crack Babies

crackbabiesÉg veit ekki mikið um The Crack Babies annað en að þetta er 24 ára svíi sem býr í Gautaborg og að hann er í krabbamerkinu. Og hann hefur hátt. Lostmusic Recordings í Bretlandi gáfu út EP plötu með honum árið 2005 sem seldist fljótt upp og hefur síðan þá verið "download release" á vefsíðu þeirra.

Hávaðinn er slíkur að Jesus and Mary Chain og Singapore Sling myndu samanlagt ekki komast með tærnar þar sem þessi svíi hefur hælana. Ég reyndi að hlusta á þetta í vinnunni um daginn, þar sem ég er svo heppinn að geta verið með heyrnartól á mér, og gat ekki einbeitt mér að neinu á meðan. Það er svo mikið feedback að ég gæti gubbað!

 Og það er náttúrulega alveg frábært, svona músík langar mig að spila! Svo skemmtilega vill til að ég verslaði mér effect kubb fyrir nokkru síðan sem heitir Super Feedbacker and Distortion. Það gengur hinsvegar illa að koma honum í notkun, en ef einhvern langar að missa heyrnina með mér þá langar mig gjarnan að stappa aðeins á honum. Hugsanlega er eitt slíkt project að komast í gang nú þegar.

"Not for the faint of heart" stendur á vefsíðu The Crack Babies, en bandið hefur að því er virðist ekkert gert síðan þessi EP plata kom út. Hlustum á nokkur lög, "Shine" er melódískasta lagið og ef þið komist klakklaust í gegnum það þá getið þið unnið ykkur upp í gegnum "Honey Believer" og endað á "Turn up the Radio".

[MP3] The Crack Babies - Shine
[MP3] The Crack Babies - Honey Believer
[MP3] The Crack Babies - Turn up the Radio! 

[Sækja alla plötuna Smoking at Gas Stations]
[Vefsíða The Crack Babies]


Blankheit

Þá höfum við konan endanlega gefist upp á að vera alltaf skítblönk að taka yfirdrátt og greiðslusamninga. Það er því með þungu hjarta sem ég auglýsi eftirfarandi bókakost til sölu. Listinn gæti útskýrt að einhverju leyti afhverju maður er alltaf á kúpunni, en ég hef í gegnum tíðina verið forfallinn bókafíkill, sem er þó skömminni skárra en margt annað.

Fyrir utan þetta allt saman þá kemur vel til greina að selja Trace Elliot bassastæðu, tvö box og magnari, man ekki hve stórt þetta er í wöttum en þetta er mannhæðarhátt og kostaði mig um 70.000 kr fyrir um tveimur árum. Selst á 60.000 kr. Einnig forláta Hofner President bassi frá 1966 (framleiddur í 500 eintökum) sem hægt er að fá fyrir 70.000 kr. Nota bene, ekki fiðlubassi, miklu fallegri en það skrípi.

Hérna er svo listi yfir bækurnar sem ég ætla að selja. Ykkur er auðvitað velkomið að kíkja líka við og skoða herlegheitin, bjallið bara í 669-9564 og ég svara um hæl. Á meðan þá er tilvalið að hlusta á lag með svölustu hljómsveit í heimi:

Til sölu:

The Story of Civilization, 11 bindi innbundin í leður með gullbryddingum.
30.000 kr allar.

Harry Potter á ensku, innbundnar
- Philosopher's Stone
- Chamber of Secrets
- Prisoner of Azkaban
- Goblet of Fire
- Order of the Phoenix
- Half Blood Prince
Allar saman á 10.000

Dostojevski
- Fávitinn 2 bindi innbundin, saman á 2000 kr
- Djöflarnir, innbundin 2000 kr
- Karamazon Bræðurninr 2 bindi innbundnar 3000 kr
- Tvífarinn 500 kr

Stephen Hawking - The Illustrated A Brief History of Time
Innbundin glæsileg myndskreytt útgáfa, 2000 kr.

The Ghost in the Shell - Japönsk Manga myndasaga, þykk í stóru broti
2000 kr

Ghormenghast Trilogy, 3 innbundnar bækur í slipcase, myndskreyttar frá The Folio Society
5000 kr.

Science Fiction bækur frá Easton Press, innbundnar í leður, gullbryddingar (hvað var maður að pæla):
- This Immortal eftir Roger Zelazny
- Stranger in a Strane Land eftir Robert A. Heinlein
- At the Earth's Core/A Princess of Mars eftir Edgar Rice Burroughs 2 sögur í einni bók
- Stand on Zanzibar eftir John Brunner
- The Humanoids eftir Jack Williamson
- She eftir H. Rider Haggard
- Out of the Silent Planet eftir C.S. Lewis
- Speaker for the Dead eftir Orson Scott Card
- Jem eftir Frederik Pohl
- Way Station eftir Clifford Simak
- City eftir Clifford Simak
- Rogue Queen eftir L. Sprague de Camp
- The Snow Queen eftir Joan D. Vinge
- The Terminal Experiment eftir Robert J. Sawyer
1000 kr stk. (Fleiri og frægari titlar til, gæti alveg athugað að selja eitthvað af þeim líka)

Safn bóka eftir John Steinbeck, innbundnar
- Travels with Charley
- The Long Valley
- East of Eden
- Tortilla Flat/Of Mice and Men
- The Grapes of Wrath
- The Winter of our Discontent
allar saman á 5000 kr.

Paulo Coehlo safn, kiljur í hörðu slipcase
- Eleven Minutes
- The Alchemist
- The Fifth Mountain
- Veronica Decides to Die
- The Devil and Miss Prym
allar saman á 3000 kr.

Antti Tuuri:
- Dagur í Austurbotni
- Vetrarstríðið
- Til Ameríku
500 kr stk

Ýmsar innbundnar á íslensku:
- Orðastaður - orðabók um íslenska málnotkun, verð óvíst
- Íslensk Orðsifjabók, verð óvíst
- Frida, ævisaga Fridu Cahlo 1000
- Gargantúi og Pantagrúll 1000
- Kantaraborgarsögur 1000
- Ég heiti Ísbjörg, ég er Ljón 500
- Diane Setterfield - Þrettánda Sagan 500
- Petronius - Satýrikon 1000 kr
- Boccaccio - Tídægra 2000 kr
- Joseph Conrad - Meistari Jim 1000 kr
- Franz Kafka - Réttarhöldin 1000
- Aleksis Kiwi - Sjö Bræður 1000
- Douglas Adams - The Hitchhiker's Guide to the Galaxy 4 bækur í einni, 1000
- Carl Sagan - Billions and Billions fræðirit  500
- Barry Chapman - Reverse Time Travel fræðirit 500
- Miguel Cervantes - Don Kíkóti 2 bindi innbundin
3000 kr

Heavy Metal Magazine, teiknimyndasögublöð, ca 140 stk. í allt.
allt saman á 30.000, upprunalegt kaupvirði varla minna en 150.000

Einnig gríðarlegt magn af Science Fiction tímaritun frá sjötta áratugnum s.s.
- Magazine of Fantasy and Science Fiction
- Fantastic Universe
- Spaceway
- Rocket Stories
- Imagination
- The Original Science Fiction Stories
- Amazing Stories
- Galaxy
- Amazing Science Fiction Stories
- Fantastic Science Fiction Stories
- IF, Worlds of Science Fiction
- Universe
- Science Fiction Adventures
- ... og hugsanlega einhver fleiri
200 kr stk.

A Series of Unfortunate Events, innbundnar
- The Bad Beginning
- The Reptile Room
- The Wide Window
- The Miserable Mill
- The Austere Academy
- The Ersatz Elevator
- The Vile Village
- The Hostile Hospital
- The Carnivorous Carnival
- The Slippery Slope
- The Grim Grott
- The Penultimate Peril
- The End
Einnig fylgir með Lemony Snicket: The Unauthorised Autobiography
10.000 kr allt saman.

Tölvubækur:
- Sam's teach yourself networking in 24 hours 1000 kr
- Sam's teach yourself network troubleshooting in 24 hours 1000 kr
- DNS and BIND frá O'Reilly 2500 kr
- Peter Norton's Inside the PC eight edition 500 kr

Annað:
- Nietszche - Svo mælti Zaraþústra 500
- Woody Allen - The Complete Prose of Woody Allen 1000
- Le Morte D'Arthur innbundin og myndskreytt 1000
- Douglas Adams - The Hitchhiker's Guide to the Galaxy 4 bækur í einni, 1000
- Carl Sagan - Billions and Billions fræðirit  500
- Barry Chapman - Reverse Time Travel fræðirit 500

Syrtlur:
- Bruno Schulz - Krókódílastræti
- Jeanette Winterson - Kynjaber
- Pascal Quignard - Allir Heimsins Morgnar (ooofboðslega leiiiiiðinleg bók, en afar ... menningarleg, góð kaup!)
500 kr stk

Meira Sci-Fi:
- Mammoth Book of Vintage Science Fiction
- Mammoth Book of Fantastic Science Fiction
- Mammoth Book of Modern Science Fiction
500 kr stk
- The Encyclopedia of Science Fiction, hnausþykkt alfræðirit, tæplega 1300 bls.
2000 kr.

Chronicles of Narnia, kiljur á ensku:
- The Magician's Nephew
- The Lion, The Witch and The Wardrobe
- The Horse and his Boy
- Prince Caspian
- The Voyage of the Dawn Treader
- The Silver Chair
- The Last Battle
allar saman á 3000 kr vel með farnar, sumar ólesnar (nennti ekki að lesa þetta allt saman, orðinn of gamall)

Ef einhver hefur áhuga á vel með förnum Cadillac Seville sem er um það bil að verða fornbíll, þá megið þið bjalla í mig líka. Hef ekki grun um hvað slíkt apparat gæti kostað.
 


[MP3] Roadside Poppies

roadsidepoppies

Mér varð það á í fyrrasumar að fjölga mannkyninu. Þá fæddist lítil yndisleg stúlka sem telst þá vera sjötti fjölskyldumeðlimurinn, fyrir utan kettina og hamsturinn. Skyndilega varð fallega bláa Nubiran mín (sem gekk undir heitinu Bláa Bláberið) alltof lítil og við fórum að svipast um eftir stærri bíl. Eftir nokkar umhugsun var ákveðið að splæsa í þægindi í stað sparnaðar og verslaður var risastór 7 manna Chevrolet sem fékk nafnið Rauða Rúsínan.

Síðan skall á kreppa og skrjóðurinn sá er þeim galla búinn að allir mælar eru í mílum en ekki kílómetrum. Það vandast því málið að reikna út hvað hann eyðir og stærðfræði hefur aldrei verið mitt sterkasta fag. Eftir grófan útreikning í huganum fann ég því út að hann eyddi circa 100 lítrum á hundraðið. Þá var dreginn fram hjólgarmur sem mér lánaðist að fá gefins fyrir nokkru. Það er hinsvegar þrautin þyngri að hljóla í vinnuna, einhverra hluta vegna svitna ég eins og grís og paufast upp minnstu brekkur blásandi eins og eimreið. Þetta fannst mér ekki sniðugt. Því fór ég að draga hljólið fram í frítíma mínum og hjóla um nágrennið, Öskjuhlíðina og Fossvoginn og draga krakkana með, svona til að byggja upp þol. Og það er barasta ekkert mál!

Því komst ég að þessari niðurstöðu, það er ekkert mál að HJÓLA... það er hinsvegar þrælerfitt að hjóla í VINNUNA.

Roadside Poppies er Twee band frá Cambridge í Bretalandi, frontað af Matloob Qureshi sem mér virðist vera indversk ættaður. Drengurinn sá flutti til Kaupmannahafnar snemma á þessu ári og sankaði þar að sér fólki til að spila með sér svo að hljómsveitin væri ekki dauð á meðan, Roadside Poppies hefur því þá sérstöðu að vera til bæði í Danmörku og Bretalandi. Og Matloob er ekki ókunnugur hjólreiðum, hugsanlega er hann að hjóla í vinnuna í þessu lagi:

[MP3] Roadside Poppies - Cycling and Crying

Matloob sendi mér línu í fyrra í tölvupósti, sagðist hafa hitt íslenska stúlku á tónleikum með þeim þar ytra. Sú vildi ólm að þeir kæmu til Íslands. Ef hún les þetta þá biður hann að heilsa. En tékkum á fleiri lögum með þeim félögum.  

[MP3] Roadside Poppies - Wed Nes Day
[MP3] Roadside Poppies - Just Another Love Song

[Roadside Poppies á Myspace]


[MP3] The Specific Heats

specific

Fólk er alveg sultuslakt á Besties getrauninni, giskar ekki einu sinni á Gullfoss, þótt með fylgi mynd af bandinu við það að stökkva í fossinn. Enda ekki margir sem þekkja The Besties og vita ekki til hvers er að vinna. Það má hinsvegar upplýsa að staðurinn er á Snæfellsnesi og honum fylgir sú hjátrú að óskir manns rætist ef ákveðin skilyrði eru uppfyllt. Vinningurinn er ekki af verri endanum enda eru 7" smáskífur nú hipp og kúl, og þessi er þar að auki grá á litinn.

Núna er hinsvegar ljómandi fallegur sunnudagur, með tilheyrandi skýjafari, kulda og roki, í það minnsta hér á höfuðborgarsvæðinu. Þá er við hæfi að skella sér í sunnudagsbíltúr og fá sér ís, og þetta vita krakkarnir í The Specific Heats frá Boston. Hljómsveitin er hugarfóstur hins smávaxna Mat Pat sem hefur einnig verið liðtækur meðlimur sveita eins og Shumai og My Teenage Stride. Í fyrra kom út platan Aboard a Spacechip of the Imagination sem er stútfull af nördapoppi með surf áhrifum....

specific2

Hlýðum á lag um ís, og fáum svo fallegt lag þar sem Mat tekst að tvinna saman misheppnuðu ástarævintýri og Carl Sagan. "It was science that brought us together and nature that pulled us apart".

Ég er alveg sérstaklega veikur fyrir lögum þar sem "ba ba ba" er notað sem uppfylling í textagerð.  "Ice Cream Shop" er fallegt dæmi um lag þar sem ba ba ba er notað í góðu hófi. Á næstunni ætla ég svo að draga fram í dagsljósið lög þar sem þetta er notað meira en góðu hófi gegnir.

[MP3] The Specific Heats - Ice Cream Shop
[MP3] The Specific Heats - Carl Sagan

[The Specific Heats á Myspace]


[MP3] The Besties - getraun

besties

Bandaríska tweepopp sveitin The Besties rak á land hér á Íslandi seinasta sumar, og spiluðu þau bæði á Paddy's í Keflavík og Organ í Reykjavík. Þeim til halds og trausts voru Hellvar, Vicky Pollard, Dýrðin, Jan Mayen og Foreign Monkeys. Þessi ágæta sveit var upphaflega tríó og þau notuðu skemmtilegan trommuheila sem var kallaður Shitkicker, en seinna bættist trommuleikarinn Frank Korn við og þannig skipuð léku þau hér, úttauguð eftir túr um Bretland og Svíþjóð, og Frank fárveikur. Það stoppaði þau ekki í að spila kick ass gigg og ferðast vítt og breytt um landið.

Fyrsta breiðskífan þeirra, Singer, sem var nefnd eftir fyrsta gítarleikaranum þeirra, kom út 2006 hjá Skipping Stones Records, og næsta plata er á leiðinni í október. Forsmekkinn af henni er að finna í smáskífunni Bone Valley Deposit sem kom út hjá Hugpatch í NYC fyrr á þessu ári.

Bandið heillaðist náttúrulega af landi og þjóð og hughrifin voru slík að lag á nýju plötunni er helgað ákveðnum stað sem þau heimsóttu. 

Og þá er komið að getrauninni, hvaða stað á Íslandi teljið þið líklegan til að vera yrkisefni The Besties?

Sá sem fyrstur giskar rétt fær að launum eintak af Bone Valley Deposit smáskífunni!

Þangað til skulum við hlusta á lag af fyrstu plötunni. Takið eftir textanum og skemmtilegri röddun í enda lagsins.

[MP3] The Besties - Zombie Song

[The Besties á Myspace]

The Besties hafa unun af að hoppa:

the_besties

Hérna hoppa þau svo að segja á ystu nöf á kunnglegum stað:

bestiess


[MP3] Godflesh

godflesh

Eflaust hefur auglýsingaherferð Vodafone, Skítt með kerfið, ekki farið framhjá mörgum, en þar er gert út á ímynd pönksins. Lítt áberandi smáatriði í heilsíðuauglýsingu Vodafone manna er hinsvegar barmmerki með orðinu Godflesh. Godflesh var hinsvegar, eins og allir vita, ekki pönkhljómsveit heldur lék hún "industrial metal".

Ég átti mitt industrial metal tímabil á yngri árum og eignaðist þá plötur með Ministry, Skinny Puppy og plötuna Streetcleaner með Godflesh, sem einstaka sinnum ratar á fóninn hjá mér enn.

Godflesh var stofnuð árið 1988 af fyrrum meðlim Napalm Death, Justin nokkrum Broadrick. Sveitin var undir áhrifum frá Swans, Killing Joke, Big Black og Throbbing Gristle svo nokkrar séu nefndar. Paul Raven úr Killing Joke og Ministry gekk síðar til liðs við sveitina en hún hefur einnig skartað fyrrum meðlimum Swans, Guns 'n Roses og Loop (hver man eftir Loop?). Ennfremur hefur Justin unnið með skallapoppurunum Sunn O)))).

Árið 2002 lagði Godflesh upp laupana þegar Justin fékk taugaáfall. Hann jafnaði sig þó innan skamms og stofnaði sveit sem enn starfar og ber heitið Jesu, en mun ekki spila kristilegt rokk þrátt fyrir nafngiftina.

Streetcleaner er þung plata í meira lagi, og ekki hugsuð fyrir rómantískt kvöld með elskunni þinni, nema hugmyndir manns um rómantík innihaldi tjah, króka og keðjur af ýmsu tagi. Hlýðum á tóndæmi:

[MP3] Godflesh - Christbait Rising

Og hvað er Justin að bralla núna? Shoegaze metal pop!

justinbroadrickasfinal

[MP3] Jesu - Conqueror

[Jesu á Myspace]
[Godflesh á Myspace]


[MP3] Vivian Girls

vivian

Vivian Girls eru frá Brooklyn og gáfu nýlega út fyrstu breiðskífu sína, sem heitir einfaldlega Vivian Girls. Platan sú seldist upp svo að segja strax, en hún var víst prentuð í frekar takmörkuðu upplagi. Hugsanlega nógu takmörkuðu til að vinir og ættingjar hafi hreinlega keypt það upp, en bloggarar hvarvetna halda vart vatni yfir snilldinni.

Ég er ekki búinn að spræna á mig ennþá, en ansi oft þegar ég rekst á eitthvað um annað band sem ég held mjög uppá (pains of being pure at heart), þá er eitthvað verið að skrifa um þetta band í nánu samhengi við þau. Þannig ég tékkaði á þeim. Afhverju er allt þetta fuzz? Hljómar eins og argasta ruslatunnurokk, en er sagt líkjast mjög C-86 böndum ef fólk kannast við það fyrirbæri. Sjálf segjast þær ekki undir áhrifum þaðan heldur mikið meira frá pönki.

Þess má til gamans geta að platan inniheldur 10 lög og er bara 22 mínútur á lengd. Ekkert verið að eyða tímanum í óþarfa á þeim bænum. "Where do you run to" finnst mér standa uppúr af þessum lögum.

[MP3] Vivian Girls - Where do you run to
[MP3] Vivian Girls - Tell the world
[MP3] Vivian Girls - I believe in nothing
[MP3] Vivian Girls - Wild eyes
[MP3] Vivian Girls - All the time

Þess ber svo að sjálfsögðu að geta að viðtal við bæði Pains og Vivian Girls er að finna í Twee As Fuck fanzine sem er nýkomið út.

[Myspace]


[MP3] Airwaves #14 - Planningtorock

Planningtorock er ekkert sérstaklega mikið að plana það að rokka. Það verður líklegast ekki snefill af rokki á tónleikum Planningtorock satt að segja. "More like Planning to suck" stóð á einu bloggi. Mér virðist að tónleikar hennar séu mikið sjónarspil, meira gjörningur heldur en eiginlegir tónleikar. Hérna er smá umfjöllun um hina ungu og mjög svo efnilegu listakonu Janine Rostron sem er allt í öllu í þessari hljómsveit.

Þessi orð voru höfð um listakonuna á öðru bloggi, mér þykir sjálfsagt að vitna í þau:

"With a laptop as her backing band, and weird projections playing in the background, Rostron kind of reminded me of the crazy French lady on LOST. She wore billous white clothes, and donned at least three different hats/masks, including one that made her look like the Sandpeople in Star Wars. She had a chair that she often stood on while she rolled the mike around in her hands or sang into a bone. (Yes, I said a bone.) I thought for sure she was going to fall off."
- soundbytes.typepad.com

Og myndband við lagið "Changes":

Og hér má hlýða á lagið "Think that though":

[MP3] Planningtorock - Think that thought

[Myspace]


[MP3] Thrushes

thrushes

Thrushes frá Baltimore eru nýja uppáhaldið mitt. Þau spila kraftmikið Shoegaze af bestu gerð og hafa verið að vekja athygli þar ytra m.a. með því að hita upp fyrir The Raveonettes. Fyrsta platan þeirra, Sun Come Undone, kom út í fyrra og eftir 4 daga verður gripurinn gefinn út á vínyl, enda er það hipp og kúl núna. Tékkum á nokkrum lögum og hækkum í botn!

[MP3] Thrushes - Flying
[MP3] Thrushes - Aidan Quinn
[MP3] Thrushes - Into the Woods

Og vídeó við lagið "Heartbeats":

[Myspace]


[MP3] Airwaves #13 - Yelle

yelle

Yelle virðist við fyrstu athugun vera einhverskonar tískufyrirbæri. Hugsanlega ilmvatn. Eða nýtt tímarit í stíl við Elle. Svo kemur upp úr kafinu að þetta er frönsk söngkona sem skýrir hvað þetta er að gera á Iceland Airwaves, en reyndar er líka til kanadískur hokký leikmaður sem heitir Stephane Yelle.

Stúlkan hefur átt m.a. lag í tölvuleiknum Need for Speed ("À cause des Garçons"). Ég er eitthvað að reyna að klóra mig út úr wikipedia síðunni um hana, hún er fædd 1983 og virðist hafa búið til lög með sömplum úr öðrum lögum, og svo hafa aðrir remixað lögin hennar. Og já, hún hefur hitað upp fyrir Mika. Mér gæti eiginlega ekki verið meira sama um þetta fyrirbæri. Vesgú!

[MP3] Yelle - Je Veux Te Voir
[MP3] Yelle - Ce Jeu (The Twelves Remix)
[MP3] Yelle - Mon Meilleur Ami (La Dolce Vita Remix)
[MP3] Yelle - Dans Ta Vraie Vie
[MP3] Yelle - À Cause Des Garçons (Tepr Remix)

[Myspace]


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband